Hnausar
Þeir munu hafa hrunið úr Flettunum í Kirkjufellinu fyrir löngu síðan. Byggð í Hnausum mun hafa lagst af um aldamótin 1900. Ofan Hnausa er uppsprettulind og lækurinn rennur niður Vopnalág. Hnausabærinn var upp af Vopnaláginni, í jaðarnum á hæðinni.