Vopnalág
Hún gekk alltaf undir nafninu Hnausalág, frá því ég man eftir mér og ofan í hana rennur Hnausalækur. Hann kemur úr uppsprettu við fjallsrætur og þornar aldrei upp og botnfrýs ekki. Á klöppunum fyrir neðan Vopnalág hafa verið pollar frá alda öðli og er mikið af hornsílum í þeim.